Sameiginleg dagskrá Svalbarðsstrandarhrepps og Grenivíkur á Hinsegin hátíð

Í tilefni Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra bjóða Svalbarðseyri og Grenivík upp á sameiginlegan viðburð sem fer fram fimmtudagskvöldið 19. júní.

Viðburðurinn fer fram á Kontorinn restaurant á Grenivík og hefst kl. 20:00. Fyrst mun Símon Birgir Stefánsson deila reynslu sinni af því að vera hinsegin í litlu samfélagi og hvernig það hefur mótað hann. Erindið er um hálftímalangt.

Í kjölfarið verður slegið á léttari strengi þegar hresst og skemmtilegt barsvar hefst. Þar keppa tveir saman í liði og er búist við góðri stemningu og fjöri fram eftir kvöldi.

Enginn aðgangseyrir er á viðburðinn og allir eru hjartanlega velkomnir.

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á Facebook-síðunni HIN barsvar og heimasíðu Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra, sem fer fram dagana 18.–22. júní 2025.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra er haldin í þeim tilgangi að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og skapa opið og öruggt samfélag fyrir alla. Hátíðin byggir á vel heppnaðri fyrirmynd frá Hrísey, þar sem fyrsta Hinsegin hátíðin var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni ásamt Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey. Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.

Góða skemmtun!