Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir að ráða flokkstjóra í Vinnuskóla sumarsins og starfsfólk við sundlaug hreppsins.
Menntun og hæfni flokkstjóra:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Íslenskukunnátta
Vilji til samvinnu
Jákvæðni og sjálfstæði
Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
Stjórnun starfs vinnuskólahóps
Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
Skil á tímaskýrslum og umsögnum um nemendur
Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum.
Menntun og hæfni sundlaugarvarða:
Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
Þekking í skyndihjálp
Íslenskukunnátta er kostur
Vilji til samvinnu
Jákvæðni og sjálfstæði
Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
Öryggisgæsla
Þjónusta við gesti sundlaugarinnar
Fylgjast með gæðum sundlaugarvatns og taka prufur
Þrif á húsnæði og útisvæði
Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og SÍS.
Nánari upplýsingar um störfin eru gefnar á skrifstofu hreppsins.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí.
Umsókn skal skila rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins
eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is.
Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.
Svalbarðsstrandarhreppur · Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri · 464 5500 · svalbardsstrond.is
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801