Sveitarstjórnarkosningar í Svalbarðsstrandarhreppi

Kjörstaður í Svalbarðsstrandarhreppi vegna Sveitarstjórnarkosninga 2026 16. maí nk. verður í Valsárskóla. Kjörfundur hefst kl. 09:00 og stefnt er að því að ljúka kjörfundi kl. 17:00. 

Gengið verður inn í Valsárskóla að vestanverðu (sjá mynd).

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Bent er á að ef nota á stafræn ökuskírteini þarf að huga að uppfærslu þeirra áður en komið er á kjörstað.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á kjörstað má finna á https://island.is/hvernig-er-kosid

Upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má finna á https://island.is/s/syslumenn/kosning-utan-kjoerfundar

Kjörskrá er aðgengileg á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps auk þess sem finna má upplýsingar um sinn kosningarstað á https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/sveitarstjornarkosningar-2026/

Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Valsárskóla.

Sími kjörstjórnar er 868-3922.

Kjörstjórn Svalbarðsstrandarhrepps

Bryndís Hafþórsdóttir, Heiðdís Lóa Ben Pálsdóttir og Vignir Sveinsson.