Rekstur sveitarfélagsins stendur á traustum grunni og fjárhagsstaða er sterk, sem skapar svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og styrkir stöðu þess til framtíðar.
Helstu niðurstöður ársreiknings 2025 eru eftirfarandi:
Rekstrartekjur A- og B-hluta námu 856,7 milljónum króna, sem er 8% hækkun frá árinu 2024.
Laun og launatengd gjöld voru 456 milljónir króna og hækkuðu um 12,8% milli ára. Launakostnaður sem hlutfall af rekstrartekjum A-hluta hefur því hækkað og er nú 53,8%.
Annar rekstrarkostnaður nam 263 milljónum króna, sem er um 2,8% undir áætlun ársins.
Rekstrarniðurstaða var jákvæð um 98,7 milljónir króna, en áætlun gerði ráð fyrir 93,3 milljónum.
Fræðslu- og uppeldismál eru áfram umfangsmesti málaflokkur sveitarfélagsins. Kostnaður hans nam 61,4% af heildarskatttekjum aðalsjóðs, samanborið við 59,0% árið 2024 og 60,8% árið 2023.
Langtímaskuldir A- og B-hluta nema 14,9 milljónum króna og tengjast eingöngu láni vegna Laugartúns 6b. Skuldaviðmið sveitarfélagsins samkvæmt reglugerð er 0%, en leyfilegt hámark er 150%.
Veltufé frá rekstri var 148,9 milljónir króna, eða 16,7%. Nettó fjárfestingar ársins námu 182,4 milljónum króna.
Handbært fé í árslok var 90,4 milljónir króna og eigið fé sveitarfélagsins 1.290 milljónir króna.
Að lokinni yfirferð er ljóst að niðurstaða ársreiknings fyrir árið 2025 er afar góð og endurspeglar traustan rekstur sveitarfélagsins. Sú staða er ekki sjálfgefin, heldur afrakstur markvissrar vinnu og ábyrgra ákvarðana.
Það er ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist til og mikilvægt að halda áfram á sömu braut. Kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins og íbúar allir eiga sinn þátt í þeirri sterku stöðu sem sveitarfélagið er í. Það er sameiginlegt verkefni okkar að standa vörð um hana, þannig að tryggja megi áfram góða þjónustu og öfluga uppbyggingu innviða.
Nú þegar kosningar eru fram undan er sérstaklega ánægjulegt að geta lagt fram svo jákvæða niðurstöðu, bæði fyrir síðastliðið ár og kjörtímabilið í heild.
Ég vil færa íbúum, starfsfólki og sveitarstjórn mínar bestu þakkir fyrir öflugt og farsælt samstarf á kjörtímabilinu. Framundan eru krefjandi og spennandi verkefni, á þeim grunni sem lagður hefur verið mun áfram verða unnið markvisst að framþróun sveitarfélagsins og velferð íbúa.
Að lokum óska ég öllum frambjóðendum heiðarlegrar og málefnalegrar kosningabaráttu á lokametrunum.
Þórunn Sif Harðardóttir
Sveitarstjóri
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801