Undirbúningur opnunar sundlaugar í fullum gangi

Unnið er af krafti að undirbúningi fyrir opnun sundlaugar sem stefnt er að í byjun næstu viku.

Framkvæmdir eru á lokastigi og er nú unnið að því að klára að tengja nýja pottinn auk þess sem verið er að ljúka málningu laugarinnar þegar veður gefur færi til.