Útboð á framkvæmdum - Leikskólinn Álfaborg

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps óskar eftir tilboðum í verklegar framkvæmdir við gerð stækkunar við leikskólann Álfaborg, Svalbarðsstrandarhreppi. Ný bygging er norðan við núverandi húsnæði og er heildar stærð 547,4 fermetrar. Verklok eru 31. október 2027.

Helstu verkþættir eru:
• Jarðvinna
• Steypa grunn og reisa burðarvirki úr KLT-timbureiningum
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss og uppsetning á föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna og rafkerfa.

Útboðsgögn verða aðgengileg í gegnum tölvupóst ts@opusehf.is frá 11. maí 2026.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Svalbarðseyri, fyrir kl 11:00 þann 4. júní 2026 og verða tilboðin opnuð á sama stað og tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.