Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.–21. júní 2026.
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki vegna viðburða á hátíðinni. Styrkir eru á bilinu 50.000-300.000 kr.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk. Sækja um styrk hér.
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.
Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey standa að hátíðinni. Samstarfsaðilarnir vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.
Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801