Virkjum íbúana! Tækifæri til að efla samveru og þátttöku íbúa

SSNE stendur fyrir skemmtilegu verkefni sem vert er að benda á.

Verkefnið Virkjum íbúana veitir sveitafélögum á Norðurlandi Eystra tækifæri til að þróa fjölbreytt verkefni og viðburði sem efla samveru, þátttöku og virkni íbúa. Horft er sérstaklega til þess hvernig hægt er að nýta samfélagshús og aðra samkomustaði sem lifandi miðstöðvar í heimabyggð. Hugmyndir geta verið fjölbreyttar, allt frá félagsstarfi, menningu eða fræðslu til nýrra leiða sem gætu tengt saman ólíka hópa og kynslóðir. 

Frestur til að skila inn hugmyndum er 29. október.

Við hvetjum alla til að skoða verkefnið hér og/eða hafa samband við verkefnastjóra SSNE þær Díönu jóhannsdóttir og Elvu Gunnlaugsdóttir.