Eldri borgarar á Svalbarðsströnd!

Í sumar fengum við styrk frá félagsmálaráðuneytinu vegna félagsstarfs eldri borgara á tímum COVID-19

Nú ætlum við að fara saman í haustferð til Grenivíkur, skoða okkur um og heimsækja veitingastaðinn Mathús Milli Fjöru og Fjalla þar sem við borðum kvöldmat.

Farið verður frá Valsárskóla kl. 16:00 fimmtudaginn 15. október og ráðgert að koma aftur tilbaka um kl. 20:00.

Kostnaður fer eftir fjölda þátttakenda og skráning fer fram á netfangið bjorg@svalbardsstrond.is.

Skráning er til 10. október.