Enn á ný bjóða Skógarböðin eldri borgurum á Eyjafjarðarsvæðinu í heimsókn – að kostnaðarlausu. Boðið stendur dagana 2.–4. febrúar og hægt er að mæta hvenær sem er á opnunartíma þessa daga.
Vakin er athygli á að Bistró, veitingarstaður Skógarbaðanna, verður með styttri opnun 2. og 3. febrúar, en eldhúsið verður opið til kl. 19 þessa tvo daga.
Við hvetjum alla eldri borgara í Svalbarðsstrandarhreppi til að nýta þetta frábæra tækifæri til að njóta náttúrulaugarinnar.
Engin skráning er nauðsynleg – bara mæta og njóta!
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801