Fundarboð 164. fundur 27.01.2026. Athuga fundur er klukkan 13:00.

164. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2022-2026 verður haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 27. janúar 2026 kl. 13:00.

Dagskrá

Almenn mál

1.

S2511008 - Geldingsá - Umsókn um byggingareit og stofnun lóðar

 

Erindi sem tekið var fyrir á fundi sveitarstjórnar 9. desember 2025 sl, þar sem Árholt ehf. óskaði eftir að skilgreindur yrði byggingarreitur fyrir íbúðarhús í landi Geldingsár og stofnun nýrrar frístundalóðar. Erindinu var vísað í grenndarkynningu sem lauk 16. janúar sl. en athugasemdir bárust á grenndarkynningartímabilinu frá Minjastofnun og eigendum Geldingsárhlíðar 5 (L230622)

 

   

2.

S2511012 - Heiðarsól - Beiðni um deiliskipulagsgerð

 

Erindi frá frá vinnuhópi um uppbyggingu innviða við frístundalóðir í Heiðarsól þar sem óskað er eftir breytingu á núverandi deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Sólbergs. Deiliskipulagsbreytingin fjallar um fráveitu á svæðinu þar sem komið yrði upp lítilli lífrænni hreinsistöð á hverri lóð í stað sameiginlegra rotþróa eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir.

 

   

3.

S2404004 - Sólheimar 10 L225712 - breyting á byggingarreit v.bílskúrsbyggingar

 

Erindi, fyrir fundinum liggur breytingarblað dags. 22.12.25 þar sem byggingarreitur lóðarinnar Sólheima 10 er stækkaður um 7 m til norður vegna bílskúrsbyggingar. Sveitarstjórn vísaði erindinu upphaflega í grenndarkynningu 24.apríl 2024 þar sem engar athugasemdir bárust og deiliskipulagsbreytingin þ.a.l. samþykkt. Þar sem breytingarblaðið hafði aldrei borist var deiliskipulagsbreytingin aldrei auglýst í B-deild Stjórnartíðinda innan árs frá fyrri samþykkt og því er erindið tekið upp að nýju.

 

   

4.

S1901020 - Húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps

 

Endurskoðuð húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2026 lögð fram til samþykktar.

 

   

5.

S2512004 - Ráðgjafasamningur vegna velferðarþjónustu og skólaþjónustu

 

Erindi frá Akureyrarbæ, ráðgjafasamningur vegna velferðar- og skólaþjónustu Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps og Hörgársveitar við Akureyrarbæ tekinn til síðari umræðu.

 

   

6.

S2601004 - Drög að Loftslagsstefnu Norðurlands eystra til umfjöllunar í sveitarstjórnum.

 

Erindi frá SSNE, drög að Loftslagsstefnu Norðurlands eystra til umfjöllunar í sveitarstjórnum.

 

   

7.

S2601003 - Styrkbeiðni fyrir börn með ME

 

Erindi frá ME félagi Íslands, beiðni um styrk.

 

   

8.

S2601002 - Ársskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri 2024

 

Árskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.

 

   

9.

S2505008 - Fyrirspurn til sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps varðandi útilistaverk

 

Erindi frá Þórhalli Ingasyni. Beiðni um að sveitarfélagið finni útilistaverkinu Vaðlaheiðarvegamálaverkfærageymslulyklakippuhring stað í sveitarfélaginu.

 

   

10.

S1801004 - Umsögn um tækifærisleyfi

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, ósk um umsögn sveitarstjórnar um veitingu á tækifærisleyfi þann 7. febrúar 2026 í Valsárskóla (þorrablót).

 

   

11.

S1911017 - Fundadagatal nefnda Svalbarðsstrandarhrepps

 

Erindi frá sveitarstjóra, tillaga að fundadagatal sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2026 lögð fram til samþykktar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

12.

S2201007 - Fundargerðir stjórnar SSNE árið 2022

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 79 lögð fram til kynningar.

 

   

13.

S2208016 - Fundargerðir HNE

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 245 lögð fram til kynningar.

 

   

14.

S2202008 - Hafnarsamlag fundargerðir

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 303 lögð fram til kynningar.

 

   

15.

S2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 103 og 104 lagðar fram til kynningar.

Eftirfarandi mál tekið fyrir tengt Svalbarðsstrandarhreppi.
Sólheimar 17 - einbýlishús 2022 - 2208005
Erindi dagsett 3.12.2025 þar sem Sigurjón Friðjónsson sækir um breytingar á áður
samþykktum teikningum af einbýlishúsi á lóðinni Sólheimar 17, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir frá Eyjólfi Valgarðssyni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

 

   

16.

S2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

 

Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 990 og 991 lagðar fram til kynningar.

 

   

17.

S2105001 - Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2026 Fundargerðir

 

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar nr 18 ásamt áætlun fyrir árið 2026 lagt fram til kynningar.