Fundarboð 167. fundur 10.03.2026

Dagskrá:

Almenn mál

1.

S2602001 - Brautarhóll (L152883) - fyrirspurn um skipulagsmál

 

Erindi frá kaupendum jarðarinnar Brautarhóls (L152883) um áform um að breyta hlöðu á jörðinni í bifvélaverkstæði í atvinnuskyni. Málið var áður tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 24.02.2026 og var skipulags- og byggingafulltrúa þá falið að kalla eftir frekari gögnum. Nú liggja fyrir drög að teikningum og nánari upplýsingar um áformin.

 

   

2.

S2603005 - Merkjalýsing fyrir nýja íbúðar-/frístundalóð í landi Geldingsár (L152892)

 

Erindi vegna framlagðrar merkjalýsingar lögð fram til staðfestingar.

 

   

3.

S2203001 - Tjarnartún 2

 

Erindi frá AB byggir ehf. kt. 4603262300, sækir um að fá úthlutaðri parhúsalóðinni Tjarnartúni F2500645.

 

   

4.

S2512004 - Ráðgjafasamningur vegna velferðarþjónustu og skólaþjónustu

 

Erindi frá Akureyrarbæ, tekinn er til annarrar umræðu samningur Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu.

 

   

5.

S2103009 - Safnasafnið, samstarfssamningur

 

Erindi frá stjórn Safnasafnsins. Stjórnin óskar formlega eftir framlengingu á samstarfssamningi Safnasafnsins og Svalbarðsstrandarhrepps. Núverandi samningur rennur út árið 2026.

 

   

6.

S2603002 - Tillögur að breytingum á samþykktum Norðurorku hf.

 

Erindi frá stjórn Norðurorku. Undanfarið hefur stjórn Norðurorku hf. unnið að endurskoðun samþykkta félagsins en þær voru síðast uppfærðar árið 2008. Í vinnunni hefur sérstaklega verið horft til lagabreytinga sem orðið hafa, leiðbeininga Viðskiptaráðs um góða stjórnarhætti fyrirtækja, sem og eigandastefnu Akureyrarbæjar.

Stjórn hefur fjallað um efni samþykktanna á þremur stjórnarfundum og nú liggja fyrir drög að breyttum samþykktum. Þau eru hér með send eigendum Norðurorku hf. til umfjöllunar og óskað eftir athugasemdum við drögin ef við á.

 

   

7.

S2603001 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

 

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 kl. 14:00 á Grand Hótel í Reykjavík.

Vakin er athygli á því að allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja aðalfundinn svo og fulltrúar fjölmiðla skv. hlutafélagalögum (nr. 2/1995). Sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.

 

   

8.

S2405006 - Ársþing SSNE

 

Erindi frá SSNE, boð á ársþing SSNE verður haldið á Dalvík 26. mars nk.

 

   

9.

S2603003 - Áskorun til sveitarfélaga

 

Erindi frá Siglingasambandi Íslands sem skorar á sveitafélög landsins að leggja aukna og
markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi
almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.

 

   

10.

S1903010 - Stjórnsýsluskoðun Svalbarðsstrandarhrepps

 

Erindi frá sveitarstjóra. Stjórnsýsluúttekt 2025 er lokið. Niðurstöður kynntar fyrir sveitarstjórn.

 

   

11.

S2603004 - Umsókn um styrk til UMSE vegna Landsmóts 50+

 

Erindi frá UMSE vegna Landsmóts 50+ sem haldið verður í Eyjafjarðarsveit dagana 26.- 28. júní. Þar sem Svalbarðsstrandarhreppur er hluti af svæði UMSE, leitar mótsnefndin til sveitarstjórnar um styrk.

 

   

12.

S2202007 - Fundargerðir stjórnar Norðurorku

 

Fundargerð stjórnar Norðurorku nr. 320 lögð fram til kynningar.

 

   

13.

S2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

 

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 107 lögð fram til kynningar.

 

   

14.

S2102002 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021

 

Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993 lögð fram til kynningar.