Dagskrá:
|
Almenn mál |
||
|
1. |
S2604003 - Ársreikningur 2025 |
|
|
Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps 2025 - fyrri umræða. Jón Ari frá KPMG mætir á fundinn og fer yfir ársreikninginn. |
||
|
|
||
|
2. |
S2604002 - Vaðlaborgir 17 - Breyting á deiliskipulagi |
|
|
Erindi frá Landslagi ehf. f.h. lóðarhafa Vaðlaborga 17 þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að heimila allt að 30 m² gestahús norðan við núverandi hús á lóðinni og skilgreina byggingarreit fyrir það, a.m.k. 3 m frá lóðarmörkum. Gildandi deiliskipulag Vaðlaborga A fylgir fundargögnum. |
||
|
|
||
|
3. |
S2311003 - Hallland 7 |
|
|
Erindi vegna lóðarinnar Halllands 7 er tekið fyrir að nýju. Málið var síðast á dagskrá sveitarstjórnar 21. maí 2024, þegar landeiganda var heimilað að vinna deiliskipulag fyrir eitt íbúðarhús á lóðinni skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga. Nú liggur fyrir afstöðumynd af fyrirkomulagi byggingarreits á svæðinu, dags. 9. apríl 2025. |
||
|
|
||
|
4. |
2112001 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar II vegna Sólheima 19 |
|
|
Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Sæluheimum ehf vegna Sólheima 19. |
||
|
|
||
|
5. |
S2604001 - Umsagnarbeiðni - Geldingsá lóð nr. 23 - Rekstrarleyfi gistingar í flokki II |
|
|
Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Caze ehf. vegna Geldingsár lóðar nr. 23. |
||
|
|
||
|
6. |
S2604006 - Aðalskipulag Grýtubakkahrepps 2026 - Umsagnarbeiðni - Lýsing (Nýtt aðalskipulag) |
|
|
Erindi frá Grýtubakkahreppi. Umsagnarbeiðni vegna lýsingar á nýju aðalskipulagi Grýtubakkahrepps 2026 |
||
|
|
||
|
7. |
S2510003 - Göngustígar - Svalbarðseyri |
|
|
Farið yfir teikningar af fyrirhuguðum göngustíg sem tengir skólasvæði og gróðurreit við Safnasafnið. |
||
|
|
||
|
8. |
S2410009 - Borgartún |
|
|
Nýting á húsnæði sveitarfélagsins í Borgartúni. |
||
|
|
||
|
9. |
S2604010 - Samþykkt fyrir ungmennaráð Svalbarðsstrandarhrepps |
|
|
Erindi frá sveitarstjóra - Uppfærð samþykkt fyrir ungmennaráð Svalbarðsstrandarhrepps lögð fram til staðfestingar. |
||
|
|
||
|
10. |
S2604007 - Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga |
|
|
Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga unnin af GB stjórnsýsluráðgjöf. |
||
|
|
||
|
11. |
S2604008 - Stefna um opinbera þjónustu |
|
|
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga - Stefna um opinbera þjónustu. |
||
|
|
||
|
12. |
S2604011 - Byggðaáætlun - tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðaáætlun 2027-2031 |
|
|
Erindi frá SSNE - Byggðastofnun hefur sett fram fyrstu drög að hvítbók um byggðamál sem er á vinnslustigi. Markmiðið með að setja þau fram á þessu stigi er að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum áður en þau verða mótuð frekar og útfærð endanlega. |
||
|
|
||
|
13. |
S2604004 - Boð á aðalfund Símey, haldinn 29. apríl 2026. |
|
|
Boð á ársfundur Símey, haldinn 29. apríl 2026. |
||
|
|
||
|
Fundargerðir til kynningar |
||
|
14. |
S2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 |
|
|
Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 996 lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
15. |
S2208013 - Fundargerðir stjórnar SSNE |
|
|
Fundargerð stjórnar SSNE nr. 82 lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
16. |
S2105001 - Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2026 Fundargerðir |
|
|
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar, dags. 8.04.2026 lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
17. |
S2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa |
|
|
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 109 og 110 lagðar fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
18. |
S2204002 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar - fundargerðir |
|
|
Fundargerð stjórnar tónlistarskóla Eyjafjarðar nr. 153 lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
19. |
2603008F - Kjörstjórn - 9 |
|
|
|
||
|
20. |
2604006F - Kjörstjórn - 10 |
|
|
|
||
Aðalmenn eru beðnir að láta vita af forföllum í tíma svo hægt sé að boða varamenn.
Svalbarðseyri 17.04.2026,
Anna Karen Úlfarsdóttir
Oddviti.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801