Fundarboð 170. fundur 5.05.2026

Dagskrá:

Almenn mál

1.

S2511012 - Heiðarsól - Beiðni um deiliskipulagsgerð

 

Erindi vegna Heiðarsólar þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Sólbergs. Erindinu var áður frestað á fundi sveitarstjórnar þann 27. janúar 2026. Nú liggur fyrir uppfært erindi þar sem óskað er eftir breytingum sem varða m.a. fráveitu, vatnsveitu, raflagnir og gönguslóða innan skipulagssvæðisins. Gildandi deiliskipulag frístundabyggðar í landi Sólbergs fylgir fundargögnum.

 

   

2.

S2210006 - Endurskoðun á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2022

 

Erindi vegna auglýstrar tillögu að Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna til auglýsingar á 163. fundi sínum þann 9. desember 2025 og var hún auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 16. mars til 29. apríl 2026. Alls bárust 14 athugasemdir á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram til umfjöllunar.

 

   

3.

S2604016 - Eyrin athafnasvæði

 

Farið yfir teikningar frá Norðurorku tengdar vatnsveitu á Eyrinni athafnasvæði.

 

   

4.

S2306011 - Húsnæðismál skóla í Svalbarðsstrandarheppi

 

Fyrir fundinum liggja útboðsgögn vegna framkvæmda á stækkun á leikskólanum Álfaborg. Þröstur Sigurðsson frá Opus verkfræðistofu mætir á fundinn undir þessum lið.

 

   

5.

S2604003 - Ársreikningur 2025

 

Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps 2025 - seinni umræða.

 

   

6.

S2604017 - Viðaukar - 2026

 

Viðaukar 1 og 2 lagðir fyrir sveitarstjórn til samþykktar.

 

   

7.

S2501005 - Göngu- og hjólastígur áfangi III

 

Drög af teikningum af göngu - og hjólastíg gegnum sveitarfélagið lagðar fram til kynningar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

8.

S2602004 - Farsældarráð fundargerðir

 

Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 5 lögð fram til kynningar.

 

   

9.

S2202008 - Hafnarsamlag fundargerðir

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 306 lögð fram til kynningar.

 

   

10.

S2208016 - Fundargerðir HNE

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 247 lögð fram til kynningar.

 

   

11.

S2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

 

Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 997 lögð fram til kynningar.

 

   

12.

S2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 111 lögð fram til kynningar.

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir tengd Svalbarðsstrandarhreppi.

3. Valsárskóli - Umsókn um byggingarleyfi - S2603011
Erindi dagsett 17.03.26 þar sem Svalbarðsstrandarhreppur sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við leikskólann Álfaborg, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.

4. Vaðlaklif 6 - Umsókn um byggingarleyfi - S2603012
Erindi dagsett 18.03.2026 þar sem Vonarvegur ehf sækir um byggingaráform og
byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlaklif 6, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

5. Bakkatún 46 - Umsókn um byggingarleyfi - S2602005
Erindi dagsett 10.02.2026 þar sem Jón Gunnar Benjamínsson sækir um byggingaráform
og byggingarleyfi/heimild fyrir raðhúsi á lóðinni Bakkatún 46, Svalbarðsstrandarhreppi.
Erindinu fylgja uppdrættir eftir Smára Björnsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.

6. Kotabyggð 7 - Umsókn um byggingarheimild - S2509012
Erindi dagsett 19.09.2025 þar sem Höfðahús-íbuðarleigufélag ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir breytingu á frístundarhúsi í íbúðarhús ásamt stækkun byggingar á lóðinni Kotabyggð 7, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu
fylgja uppdrættir eftir Ríkharð Oddsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

   

13.

S2411004 - Fundargerðir Molta ehf

 

Fundargerð stjórnar Moltu nr. 117 lögð fram til kynningar.

 

   

14.

S2202011 - Norðurorka almenn mál

 

Fundargerð Eigendafundar Norðurorku dagas. 9. 04. 2026 lögð fram til kynningar.