Fundarboð 172. fundur 09.06.2026

Dagskrá:

 

Almenn mál

1. S2603006 - Sveitarstjórnarkosningar 2026

Skýrsla kjörstjórnar skv. 119. gr. kosningalaga nr. 112/2021, vegna sveitarstjórnarkosninga dags. 16. maí 2026.

 

2. S2203012 - Kosning oddvita og varaoddvita

Kosning oddvita og varaoddvita.

 

3. S2606002 - Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2026-2030

Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.

 

4. S2606001 - Ráðning sveitarstjóra 2026-2030

Ráðning sveitarstjóra.

 

5. S2606006 - Siðareglur kjörinna fulltrúa Svalbarðsstrandarhrepps

Lagðar fram til staðfestingar siðareglur kjörinna fulltrúa Svalbarðsstrandarhrepps í samræmi við 29. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

6. S2004007 - Samþykktir sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps

Endurskoðaðar samþykktir Svalbarðsstrandarhrepps fyrri umræða.

 

7. S2606003 - Erindi frá SSNE, vegna skipunar stjórnarmanns, varamanns og þingfulltrúa og varaþingfulltrúa á þing SSNE.

Erindi frá SSNE, v. skipunar stjórnarmanns, varamanns og þingfulltrúa og varaþingfulltrúa á þing SSNE.

 

8. S2606004 - Erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, kosning þingfulltrúa á landsþing.

Erindi frá Sambandi ísl. Sveitarfélaga, kosning þingfulltrúa á landsþing.

 

9. S2606010 - Nýbygging Álfaborg

Útboð á framkvæmdum - Leikskólinn Álfaborg, Kostnaðaráætlun verksins er kr. 431.369.956,- tvö tilboð bárust í verkið stækkun við leikaskólann Álfaborg, Svalbarðsstrandarhreppi. Bjóðendur eru:Ák Smíði ehf (98,70% af kostnaðaráætlun) og Valsmíði ehf. (89,5% af kostnaðaráætlun),

 

10. S2606011 - Afmælishátíð Kvenfélags Svalbarðsstrandar

Erindi frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandar, styrkbeiðni vegna afmælishátíðar Kvenfélags Svalbarðsstrandar sem fagnar 125. ára afmæli í ár. Fyrirhugað er að halda afmælisfagnað 28. júní nk.

 

11. S2606009 - Fasteignamat 2027

Erindi frá skrifstofustjóra. Fasteignamat 2027 var kynnt af HMS 2. júní sl. Skrifstofustjóri fer yfir áhrif breytinga nýs mats á fasteignir Svalbarðsstrandarhrepps.

 

12. S2105003 - Upprekstur á afrétt

Upprekstur á afrétt.

 

13. S2606005 - Bergið samningur

Erindi frá SSNE, samstarfssamningur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins.

 

14. S2604013 - Birnubarð - Umsókn um byggingarheimild

Erindi dagsett 13.04.2026 þar sem Árholt ehf. sækir um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á lóðinni Birnubarði, Svalbarðsstrandarhreppi. Upphaflegt erindi gerði ráð fyrir allt að 80 fm sumarhúsi með risi og var áður vísað í grenndarkynningu og samþykkt. Málið var tekið fyrir á 171. fundi sveitarstjórnar þann 26.05.2026 þar sem samþykkt var að vísa erindinu að nýju í grenndarkynningu, þar sem innsendir aðaluppdrættir sýndu stærra hús en upphaflega hafði verið sótt um. Umsækjandi hefur nú lagt fram uppfærða aðaluppdrætti þar sem sýnt er að húsið er 80 fm, í samræmi við upphaflega umsókn og fyrri grenndarkynningu.

 

15. S2606012 - Bakkatún 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Erindi þar sem óskað er eftir breytingu á byggingarreit lóðarinnar Bakkatún 16, L230760. Fyrir liggja uppdrættir og afstöðumynd vegna fyrirhugaðs einbýlishúss á lóðinni, þar sem sýnd er breyting á byggingarreit.

 

Fundargerðir til kynningar

16. S2602004 - Farsældarráð fundargerðir

Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra nr. 6 lögð fram til kynningar.

 

17. S2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

Fundargerð stjórnar samband íslenskrasveitarfélaga nr. 998 og 999 lagðar fram til kynningar.

 

18. S2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

Fundargerð stjórnar embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 114 lögð fram til kynningar. Eftirfarandi mál tekin fyrir tengd Svalbarðsstrandarhreppi. Bakkatún 10 - Umsókn um byggingarheimild - S2605002 Erindi dagsett 07.05.2026 þar sem Pétur Örn Helgason sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Bakkatún 10,Svalbarðsstrandarhreppi.

Erindinu fylgja uppdrættir eftir Andra Martin Sigurðsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista. Vaðlaklif 5 - Umsókn um byggingarleyfi - S2605001 Erindi dagsett 06.05.2026 þar sem Hólmfríður Vala Svavarsdóttir sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Vaðlaklif 5, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægir Vilhjálmsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista. 3. Birnubarð - Umsókn um byggingarheimild - S2604013 Erindi dagsett 13.04.2026 þar sem Árholt ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir sumarhúsi á lóðinni Birnubarð, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Vigfús Halldórsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

 

 

 

Aðalmenn eru beðnir að láta vita af forföllum í tíma svo hægt sé að boða varamenn.

 

Svalbarðseyri 05.06.2026,

Ólafur Rúnar Ólafsson