Geldingsá íbúarbyggð - auglýsing deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 29.06.2026 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð í landi Geldingsár, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan tekur til um 2 ha spildu úr landi Geldingsár, vestan Geldingsárvegar og norðan Árholts. Deiliskipulagið felur í sér skipulag sex íbúðarlóða fyrir einbýlishús. Gert er ráð fyrir aðkomuvegi frá Geldingsárvegi, byggingarreitum innan lóða, gönguleiðum og sameiginlegu hreinsivirki fráveitu. Tillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði.

 

Tillagan er aðgengileg á skrifstofu SBE, Skólatröð 9, 605 Akureyri, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is, og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, undir málsnúmeri 678/2026. Hægt er að skila inn athugasemdum við tillöguna til 27. ágúst nk. og skulu þær berast inn á Skipulagsgátt. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Geldingsa-dsk-tillaga_2026-05-07