Göngur, laugardaginn 12. september

Göngur verða laugardaginn 12. september. Hér að neðan má sjá fyrirkomulag gangna sem hefjast klukkan 9 fyrir hádegi, hægt er að nálgast dagskrána á síðunni auk þess sem hún var borin í hús. Hér að neðan má einnig finna leiðbeiningar frá Almannavörnum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssamtökum sauðfjárbænda, Bændasamtökum íslands og Embætti landlæknis, vegna gangna og rétta vegna COVID-19.

Útlit er fyrir að smalamennska og réttir verði með óvenjulegu sniði þetta haustið. Aðeins þeir sem eiga fé í réttum er leyft að taka þátt og farið verður eftir þeim leibeiningum sem vísað er til hér að ofan og koma m.a. frá Almannavörnum og Landssamtökum sauðfjárbænda.

Fyrir nokkrum dögum tók eins metra reglan gildi og er í hávegum höfð og kallast nú einnar kindar regla, menn eru beðnir um að deila ekki söngvatni og heilsa frekar með brosi en handarbandi eða faðmlagi.

Gestir eru beðnir um að sýna þessu fyrirkomulagi skilning og eru velkomnir til okkar að ári að öllu óbreyttu.

COVID 19 - göngur og réttir - leiðbeiningar
Gangnaboð haustið 2020

Með kveðju,
Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps