Grunnskólakennari óskast til starfa í Valsárskóla

Valsárskóli óskar eftir að ráða grunnskóla-/umsjónarkennara í 100% stöðu. Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst nk.

Helstu verkefni

  • Annast kennslu og umsjón í námshópi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði og leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Valsárskóli er fámennur skóli á Svalbarðseyri, í 12 km fjarlægð frá Akureyri. Einkunnarorð skólanna eru umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Nánari upplýsingar um Valsárskóla er hægt að sjá á skolar.svalbardsstrond.is og við hvetjum umsækjendur til að kynna sér starf skólans nánar þar.

Í samræmi við jafnréttisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2023.

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Umsókn skal skila á netfangið maria@svalbardsstrond.is. Nánari upplýsingar veitir María Aðalsteinsdóttir skólastjóri: 464-5510, 864-0031 og í tölvupósti.

Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Auglýsing á vef Svalbarðsstrandarhrepps                        Auglýst störf á vef Svalbarðsstrandarhrepps