Valsárskóli óskar eftir að ráða grunnskóla-/umsjónarkennara í 100% stöðu. Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst nk.
Helstu verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Valsárskóli er fámennur skóli á Svalbarðseyri, í 12 km fjarlægð frá Akureyri. Einkunnarorð skólanna eru umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Nánari upplýsingar um Valsárskóla er hægt að sjá á skolar.svalbardsstrond.is og við hvetjum umsækjendur til að kynna sér starf skólans nánar þar. Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2024. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Umsókn skal skila á netfangið maria@svalbardsstrond.is. Nánari upplýsingar veitir María Aðalsteinsdóttir skólastjóri: 464-5510, 864-0031 og í tölvupósti.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801