Jólaaðstoð 2026

Um þessar mundir er að hefjast árleg fjáröflun á vegum Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis vegna jólaaðstoðar 2026.

 

Velferðarsjóðurinn veitir einstaklingum og fjölskyldum á Eyjafjarðarsvæðinu, frá Fjallabyggð að Grenivík, neyðaraðstoð í formi inneignarkorta í matvöruverslanir. Allir sem sækja um fjárhagsaðstoð til sjóðsins þurfa að senda inn staðgreiðsluyfirlit frá Skattinum og er þannig reynt að tryggja að úthlutanir fari á rétta staði og að reglur sjóðsins séu virtar. Framundan eru þungir mánuðir fyrir mörg heimili á svæðinu og ljóst að gera má ráð fyrir að jólaaðstoð 2026 verði stórt verkefni líkt og fyrri ár.

Árið 2025 óskuðu um 500 fjölskyldur og einstaklingar eftir jólaaðstoð. Í ár hafa mánaðarlegar úthlutanir frá janúar til október verið um 600 talsins og er þá jólaaðstoðin ótalin.

 

Það fé sem safnast í sjóðinn rennur óskipt til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu í formi úttektarkorta í matvöruverslunum.

Þeim sem vilja styrkja jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis er bent á söfnunarreikning sjóðsins

 

0302-26-003533 kt. 651121-0780.

 

Við þökkum ómetanlegan stuðning og velvilja á liðnum árum.

Fh. Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis