Við í Kvenfélagi Svalbarðsstrandar viljum þakka öllum þeim sem komu og fögnuðu með okkur 125 ára afmæli félagsins niðri við Vitann.
Við erum þakklátar fyrir þessa frábæru mætingu og stoltar yfir því hvernig til tókst. Við viljum sérstaklega þakka Björgunarsveitinni Tý fyrir gæslu þeirra á hátíðinni.
Kvenfélagskonunar tóku sig til og bökuðu og framreiddu veisluhlaðborð. Upphaflega áttu að vera 17 sortir, en þær urðu nú fleiri, enda margar konur sem lögðu sitt af mörkum. Kjarnafæði gaf pylsur sem voru grillaðar og framreiddar í pappírsbátum ásamt snakki.
Spjallbekkurinn er gjöf frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandar og við hvetjum alla til að nýta sér hann.
Á síðunni Vitinn og Bekkurinn má nálgast nánari upplýsingar um bekkinn og fleira.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801