Leifshús, Svalbarðsstrandarhreppi – auglýsing deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 20. október sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir smáhýsabyggð í landi Leifshúsa skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsverkefnið tekur til spildu í landi Leifshúsa þar sem reisa á 12 smáhýsi með aðgang að ræktunarreitum og húsnæði því tengdu auk skipulagningar göngustíga.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu SBE, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, á heimasíðu sveitarfélagsins www.svalbardsstrond.is og á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 472/2024. Hægt er að skila inn athugasemdum um málið til 25. desember 2026 á vef skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Deiliskipulagstillaga má sjá hér

Skipulags- og byggingarfulltrúi