Leifshús, Svalbarðsstrandarhreppi – skipulagslýsing vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi

Skipulagslýsing

Auglýsing

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 8. mars 2021 að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulags í kynningu skv. 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið tekur til um 2,1 ha stórrar spildu í landi Leifshúsa sem skipta á upp í reiti fyrir garðrækt og húsnæði henni tengdu að fyrirmynd danskra nýlendugarða (kolonihave).

Skipulagslýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til miðvikudagsins 28. apríl n.k. til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

 

F.h. Svalbarðsstrandarhrepps

Skipulags- og byggingarfulltrúi