Leikskólinn Álfaborg lokaður 25.-27. ágúst

Ákveðið hefur verið að loka leikskólanum Álfaborg þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Lokunin á aðeins við um Álfaborg. Beðið er greiningar á sýnum vegna COVID-19, sem tekin voru af fjölskyldumeðlim starfsmanns leikskólans. Við viljum hafa varann á og lokum því leikskólanum þessa þrjá daga eða þar til niðurstaða fæst úr sýnatöku. Þessi ákvörðun er tekin í samræmi við viðbragðsáæltun sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðunni svalbardsstrond.is.

Í faraldri eins og þeim sem gengur nú yfir fellur það í hlut stjórnenda að meta hættuna, hvort skólum sé lokað og til hvaða ráðstafana er tekið í viðbrögðum vinnustaða. Vonandi eru þessi viðbrögð of hörð og of mikil en um leið erum við minnt á að slagnum er ekki lokið og veiran berst enn manna á milli.

Hlutfallslega fá smit af COVID-19 hafa greinst hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri, flest börn fá væg einkenni og einnig benda upplýsingar til þess að börn smiti sjaldan aðra. Með lokun leikskóla þessa daga viljum við koma í veg fyrir veikindi starfsmanna og foreldra. Mikilvægt er að þeir sem finna fyrir einkennum haldi sig heima og leiti sér hjálpar. Starfsmenn leikskólans halda sig í heimavið þessa daga og við vonum að hægt verði að snúa aftur til starfa í leikskólanum okkar á föstudaginn. Við bendum á heimasíðu almannavarna.

Með kveðju
Björg Erlingsdóttir sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps
Margrét Jensína Þorvaldsdóttir, skólastjóri Álfaborgar