Sunnudaginn 4. október, á síðasta sýningardegi ársins í Safnasafninu, verður boðið upp á listasmiðju fyrir börn og fjölskyldur með listakonunni Jonnu.
Í smiðjunni ætlum við að klippa, raða og líma og búa til okkar eigin klippimyndir með innblæstri frá verkum Kiko Korriro, en sýningin Frá hafi til himins hefur staðið í Safnasafninu í sumar.
Listasmiðjan stendur yfir kl. 13–15 og hægt er að koma við hvenær sem er á þeim tíma.
Í tilefni af síðasta sýningardegi ársins verður frítt inn á safnið fyrir alla á sunnudaginn. Íbúar Svalbarðsstrandarhrepps eru auk þess sérstaklega boðnir velkomnir í heimsókn á laugardaginn og fá frítt inn á safnið alla helgina.
Allir velkomnir og það verður heitt á könnunni!
https://fb.me/e/4XUiWRJzx
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801