Lokað fyrir heita vatnið á morgun föstudaginn 26. maí frá kl. 8:30 fram eftir degi

Vegna vinnu við dreifikerfi verður LOKAÐ fyrir HEITT VATN í hluta Svalbarðsstrandarhrepps á morgun föstudaginn 26.05.2023.

Lokað verður norðan við Hallland og að Garðsvík.

Áætlaður tími er frá kl. 08:30 og fram eftir degi eða meðan vinna stendur yfir. Á heimasíðu Norðurorku www.no.is má sjá góð ráð við heitavatnsrofi.