Málþing um sameiningu sveitarfélaga

Næstkomandi föstudag, 7. maí stendur Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir málþingi um sameiningu sveitarfélaga. Málþingið verður haldið á Teams og er öllum opið. Skráning fer fram á heimasíðu sambandsins og eru íbúar Svalbarðsstrandarhrepps hvattir til þátttöku: Málþing um sameiningar sveitarfélaga - Samband íslenskra sveitarfélaga

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps er að vinna valkostagreiningu með aðstoð RR Ráðgjafar og hlaut sveitarfélagið styrk frá Jöfnunarsjóði til þessarar vinnu.