Nú þarf þína aðstoð!

Nú þegar jólin nálgast erum við hér á skrifstofu hreppsins að senda jólakveðjur og auglýsingar í blöð þar sem gott er að hafa fallega mynd frá Svalbarðsströnd, mynd sem passar tilefninu. Við höfum fengið nokkrar ljósmyndir til að velja á milli og nú þurfum við hjálp ykkar til þess að velja. Hér fylgir slóð á könnunina í gegn um facebook síðu Svalbarðsstrandarhrepps. Ljósmyndarar eru heimamenn, ljósmyndirnar eru bæði fallegar og skemmtilegar og nú er komið að þér að velja. 

https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=3753908624669945&id=168517499875760