Nýbyggingar við Bakkatún

Skrifað hefur verið undir samninga um byggingu tveggja parhúsa við Bakkatún nr. 18 og nr. 20. Framkvæmdatími er áætlaður 18 mánuðir en ráðgert er að íbúðirnar verði auglýstar til sölu á næstu vikum. JS Trésmíði ehf. byggir parhús við Bakkatún 20 og BÁ hús eru hönnuðir að Bakkatúni nr. 20 og við Bakkatún 18 byggir Sigurgeir Svavarsson ehf parshús sem hannað er af M2hús. Á myndum sem fylgja þessari frétt má sjá verktaka ásamt fulltrúum sveitarfélagsins frá undirritun samninga og teikningar af báðum húsum þar sem horft er frá suðri til norðausturs.