Sirkusnámskeið á Svalbarðsströnd

Dagana 9. – 13. ágúst var haldið sirkusnámskeið á Svalbarðsströnd undir öruggri leiðsögn Húlladúllu. Krakkarnir lærðu þar ýmsar listir og Villi í Föstudagsþættinum hjá N4 kom í heimsókn, athugaði færni þátttakenda og fékk sjálfur að prófa. Við þökkum Húlladúllu kærlega fyrir komuna og gott samstarf í sumar en í júní var haldið húllanámskeið þar sem ungir og aldnir fengu að búa til sína eigin hringi og læra ýmsar kúnstir.

Það er aldrei að vita nema framhald verði á námskeiðum Húlladúllu á Svalbarðsströnd

 

https://n4.is/spilari/W8R2Rvij0Sg#play