Sólberg / Sólheimar - íbúðarsvæði, tillaga að deiliskipulagi

Sólberg – íbúðarsvæði, tillaga að deiliskipulagi

Skipulagsuppdráttur (PDF)
Skýringarmynd (PDF)

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti þann 21. sept. 2016 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði í landi Sólbergs skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir 10 íbúðarlóðum við eina húsagötu og er stærð lóða á bilinu 2.271 – 3.083 m2. Á hverri lóð verður heimilt að byggja eitt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílgeymslu.

Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 28. sept 2016 til og með 9. nóv. 2016. Tillagan verður einnig aðgengileg á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps.


Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er þannig gefinn kostur á að kynna sér tillöguna og gera athugasemd við hana. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 601 Akureyri, eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is í síðasta lagi þann 9. nóv. 2016.