Sólberg, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning skipulagslýsingar vegna aðal- og deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 15. nóvember sl. að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 og deiliskipulags fyrir íbúðarlóðir í landi Sólbergs í kynningarferli skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að skipulagi lóða fyrir fjögur íbúðarhús í landi Sólbergs.

Skipulagslýsing vegna verkefnisins liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 18. nóvember til 10. desember 2021 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til föstudagsins 10. desember 2021 til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Skipulagslýsing aðal- og deiliskipulags

Skipulags- og byggingarfulltrúi