Spennandi sumarstörf í boði

Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir að ráða flokkstjóra í Vinnuskóla sumarsins og starfsfólk við sundlaug hreppsins.

Menntun og hæfni flokkstjóra:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Íslenskukunnátta
  • Vilji til samvinnu
  • Jákvæðni og sjálfstæði
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stjórnun starfs vinnuskólahóps
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
  • Skil á tímaskýrslum og umsögnum um nemendur
  • Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum.

 

Menntun og hæfni sundlaugarvarða:

  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Þekking í skyndihjálp
  • Íslenskukunnátta er kostur
  • Vilji til samvinnu
  • Jákvæðni og sjálfstæði
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Öryggisgæsla
  • Þjónusta við gesti sundlaugarinnar
  • Fylgjast með gæðum sundlaugarvatns og taka prufur
  • Þrif á húsnæði og útisvæði

 

Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og SÍS. Nánari upplýsingar um störfin eru gefnar á skrifstofu hreppsins.
 
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí.
Umsókn skal skila rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is.
 
Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

 

Svalbarðsstrandarhreppur · Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri · 464 5500 · svalbardsstrond.is