Starfsmaður í húsvörslu og umsjón með félagsmiðstöð

Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir starfsmanni í húsvörslu og umsjón með félagsmiðstöð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  •  Vinnur við húsvörslu í grunnskóla.
  • ­ Verkstýrir og skipuleggur félagsstarf í félagsmiðstöð.
  • ­ Önnur tilfallandi störf.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •  Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • ­ Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • ­ Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • ­ Stundvísi og samviskusemi
  • ­ Góð íslenskukunnátta
  • Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og SÍS.

Nánari upplýsingar um störfin eru gefnar á skrifstofu hreppsins.

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst. Umsókn skal skila rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins

eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is.

Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja ístörfum.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.