Starfsmenn vinnuskóla vinna hörðum höndum

Starfsmenn Vinnuskóla hafa unnið hörðum höndum síðustu daga og vikur við að hreinsa til, slá grass og útrýma kerfli. Krakkarnir eru dugleg og sinna vinnu sinni vel. Íbúar hafa verið duglegir við að benda okkur á kerfil sem þarf að vinna á en viðbúið er að sú barátta eigi eftir að standa næstu árin. Hér er hluti hópsins ásamt flokksstjórum á sólskinsdegi við lóð leikskólans.