Störf flokkstjóra í Vinnuskóla 2026 laus til umsóknar

Svalbarðsstrandarhreppur auglýsir eftir flokkstjórum í Vinnuskóla 2026.

Menntun og hæfni:

Menntun og reynsla sem nýtist í starfi

Íslenskukunnátta

Vilji til samvinnu

Jákvæðni og sjálfstæði

Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

Stjórnun starfs vinnuskólahóps

Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag

Skil á tímaskýrslum og umsögnum um nemendur

Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum.

Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og SÍS.

Nánari upplýsingar um starfið eru gefnar á skrifstofu hreppsins.

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl.

Umsókn skal skila rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins

eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is.

Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Svalbarðsstrandarhreppur · Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri · 464 5500 · svalbardsstrond.is