Störf hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir tvær stöður á skrifstofu embættisins til umsóknar.

VERKEFNISSTJÓRI BYGGINGARMÁLA

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar (SBE) auglýsir eftir aðila í 80-100% stöðu verkefnisstjóra byggingarmála. Starfið felst í leyfisveitingum og lögbundnu byggingareftirlit sveitarfélags eins og það er fyrirskrifað í 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.

 Starfsmaðurinn mun bera ábyrgð á úrvinnslu erinda sem til afgreiðslu koma hjá SBE, svo sem yfirferð uppdrátta, útgáfu byggingarleyfa, samskiptum við umsækjendur og fagaðila, framkvæmd reglulegs byggingareftirlits, framkvæmd öryggis- og lokaúttekta auk annarra verkefna á sviði byggingarmála. Auk þess mun starfsmaðurinn hafa aðkomu að innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu og annarra tækninýjunga á sviði byggingareftirlits. Um er að ræða nýja stöðu og leitað er að öflugum og hæfum einstaklingi sem hefur metnað til að vaxa og eflast í starfi og áhuga á að setja mark sitt á viðfangsefni sín. Starfstöð er á skrifstofu SBE, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.

MEÐAL VERKEFNA STARFSMANNSINS VERÐA:
• Útgáfa byggingarleyfa og annarra leyfisbréfa vegna leyfisveitinga skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
• Útgáfa lokavottorða og annarra vottorða skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
• Skráning byggingarleyfa í Mannvirkjaskrá HMS.
• Yfirferð uppdrátta.
• Framkvæmd byggingareftirlits.
• Þáttaka í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu á sviði byggingarmála.
• Aðstoð við þróun byggingareftirlits og innleiðingu tækninýjunga.
• Þáttaka í samstarfsverkefnum milli sveitarfélaga á sviði byggingarmála.
• Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og aðstoð á sviði byggingarmála við borgara og framkvæmdaraðila og aðra hagsmunaaðila.
• Þáttaka í innra eftirliti skv. gæðakerfi embættisins.
• Undirbúningur og eftirfylgni afgreiðslufunda skipulags- og byggingarfulltrúa.

HÆFNI- OG MENNTUNARKRÖFUR:
• Menntun á sviði byggingarmála skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
• Góð íslenskukunnátta.
• Lipurð í samskiptum.
• Stundvísi og skipulögð vinnubrögð.
• Samvinnuhæfni og jákvæðni í samskiptum.
• Reynsla af hönnun er kostur.
• Reynsla af vinnu samkvæmt gæðakerfi er kostur.
• Reynsla af Mannvirkjaskrá eða sambærilegum gagnagrunnum er kostur.
• Þekking á algengum hugbúnaði á borð við MS Office, CAD, BIM og GIS hugbúnaði er kostur.

MÓTTÖKUSTARFSMAÐUR 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir eftir aðila í 50 % stöðu starfsmanns á skrifstofu. Starfið felst í móttöku erinda, símavörslu og úrvinnslu annarra verkefna á skrifstofu embættisins, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.

MEÐAL VERKEFNA STARFSMANNSINS VERÐA:
• Móttaka erinda og símavarsla
• Skráning upplýsinga í skjalakerfi embættisins
• Innra eftirlit skv. gæðakerfi embættisins
• Skönnun teikninga
• Almenn skrifstofustörf
• Samskipti við málsaðila vegna skipulagsmála s.s. grenndarkynninga

HÆFNI- OG MENNTUNARKRÖFUR:
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslenskukunnátta
• Stundvísi og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla af skrifstofustörfum
• Samvinnuhæfni og jákvæðni í samskiptum.
• Þekking á tölvuforritunum Outlook, Word og öðrum algengum hugbúnaði er kostur

Byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs. var stofnað árið 2017 og annast það skipulags- og byggingarmál í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og mannvirkjalögum nr. 160/2012. Starfstöð byggðasamlagsins er í Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi og þar vinna þrír starfsmenn.

Umsóknarbréf og ferilskrá í pdf sniði skulu send í tölvupósti í síðasta lagi 15. desember 2023 á netfangið vigfus@sbe.is.

Nánari upplýsingar veitir Vigfús Björnsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, í síma 463-0620.

Auglýsing birt í Dagskránni 22.11.2023