Sumarsýning Safnasafnsins 2023

Jenný Karlsdóttir afhendir Safnasafninu á Svalbarðsströnd ævistarf sitt, handverkssafn sitt sem hún hefur safnað í 60 ár, þegar sumarsýning Safnasafnsins opnar 6. maí næstkomandi. Safnið hennar er einstaklega fjölbreytt og vandað, og þann 6. maí mun hún afhenda Safnasafninu það við hátíðlega athöfn.

„Við megum ekki gleyma því að handverkið er sá menningararfur sem gerði okkur kleift að lifa af harðindi, hungur og drepsóttir,“ segir Jenný Karlsdóttir, „Mér finnst virkilega gaman að fá tækifæri til að taka þátt í að koma á framfæri þessum hluta sögu okkar sem konur hafa skapað og lofa honum að skína til að vera metin að nýju fyrir eljuna, vandvirknina og listina sem handverkið er. Það sem var er grundvöllur að því sem er.“

Eins og fram kemur á fréttasíðunni Kaffid.is er Jenný Karlsdóttir (f. 1939) fædd og uppalin á Akureyri þar sem hún býr. Hún er alin upp við ríka handverksmenningu og hefur alla tíð sinnt fjölbreyttu handverki með fram heimilis- og kennslustörfum. Jenný fékk snemma áhuga á munstrum. Hún hefur safnað margvíslegum munstrum og gefið út í heftum undir merkinu Munstur og menning (munstur.is). Tilgangurinn er að miðla munstrunum og gera þau aðgengileg til nýrrar sköpunar.

Jennýjarstofa opnar í Safnasafninu laugardaginn 6. maí klukkan 14. Sumarsýning Safnasafnsins mun í kjölfarið standa frá 7. maí til 10. september. Opið verður daglega frá klukkan 10 til 17.

Í sumar standa 12 nýjar sýningar í Safnasafninu, þar á meðal verk eftir nemendur í Leikskólanum Álfaborg og Valsárskóla. Nánar má lesa um sýningar sumarsins á vef Safnasafnsins.