Á morgun, miðvikudaginn 1. júlí, opnar sundlaugin loksins á ný!
Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur eftir endurbætur og viðhaldsvinnu sem hafa staðið yfir undanfarið. Það verður sannkölluð gleðistund að opna sundlaugina aftur og bjóða gesti velkomna.
Um leið opnum við einnig nýjan heitan pott sem við erum spennt að kynna fyrir ykkur.
🕓 Opnunartími sundlaugarinnar:
Sunnudaga til fimmtudaga kl. 16:00–20:00.
Við hlökkum til að sjá ykkur á morgun – verið hjartanlega velkomin í sund!
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801