Sunnuhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning skipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi

Sunnuhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning skipulagstillögu vegna breytingar á aðalskipulagi

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 12. desember sl. að vísa skipulagstillögu, vegna breytingar á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í því að skilgreint yrði um 3,2 ha svæði í landi Sunnuhlíðar (L152940) með landnotkuninni frístundabyggð (F12) sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L3). Þegar eru tvö frístundahús á jörðinni en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í fjögur. Fyrirhuguð frístundahús yrðu í nánd við núverandi hús og myndu nýta sama aðkomuveg og fyrir er.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu, 606 Akureyri, milli 20. desember 2023 og 3. janúar 2024, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 702/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 3. janúar 2024. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

 

Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 fimmtudaginn 28. desember nk. milli kl. 12:00 og 15:00 og mun skipulags- og byggingarfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar og taka við athugasemdum um tillöguna.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi