Svalbarðsstrandarhreppur er stoltur styrktaraðili björgunarsveita Landsbjargar

Á dögunum fór fram ein stærsta fjáröflun björgunarsveita Landsbjargar, salan á Neyðarkallinum. Samhliða sölunni á Neyðarkallinum selja björgunarsveitirnar fyrirtækjum stærri Neyðarkalla og ákvað Svalbarðsstrandarhreppur að styrkja björgunarsveitir landsins um einn slíkan. Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. 

Brynjólfur Snorri Brynjólfsson frá Björgunarsveitinni Tý afhendir Þórunni Sif Harðardóttur sveitarstjóra Neyðarkallinn 2023.