Svalbarðsstrandarhreppur takur þátt í verðstöðugleika

Fjárhagsáætlun Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, var lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 10. nóvember sl.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur ákveðið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika, gjaldskrár sveitarfélagsins verða almennt ekki hækkaðar umfram 2,5 %, jafnframt verður fasteignaskattur í A flokki lækkaður úr 0,4% í 0,34%. Seinni umræða fer fram 1. desember.

Með þessum aðgerðum vill sveitarfélagið leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu og styðja við heimili.