Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps mótmælir breytingum á Loftbrú

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú. Loftbrú er mikilvægur þáttur í að jafna búsetuskilyrði og aðgengi landsmanna að þjónustu, enda er stór hluti sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að Loftbrú haldi raunverulegu verðgildi sínu og íbúar landsbyggðarinnar sitji við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins og staða þeirra íbúa skerðist ekki vegna breytinga á fyrirkomulagi verkefnisins. Sveitarstjórn gagnrýnir jafnframt að svo veigamiklar breytingar á mikilvægum byggðaaðgerðum séu boðaðar án víðtæks samráðs við sveitarfélög og íbúa þeirra svæða sem kerfið þjónar.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps skorar á stjórnvöld að endurskoða boðaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar.