Tæmingar á rotþróm

Upplýsingar um hreinsun rotþróa í Svalbarðsstrandarhreppi 2026

Hreinsun rotþróa er gerð skv. kröfum Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Eystra og Umhverfisstofnunar.

Í Svalbarðsstrandarhreppi eru rotþrær hreinsaðar á þriggja ára fresti. Sveitarfélagið semur við verktaka sem annast rotþróatæmingar samkvæmt yfirliti sem sent er frá skrifstofu hreppsins á vorin.

Skráning tæminga fyrir hverja rotþró má nú sjá á kortasjá sveitarfélagsins.

Einnig má sjá flýtileið á heimasíðu sveitarfélagsins.

Áætlað er að tæma 42 rotþrær í sumar á svæði sem nær frá Vaðlaheiðargöngum að Svalbarðseyri.