Breyttur fundartími sveitarstjórnar fram að áramótum

Sveitarstjórn hefur ákveðið að breyta fundardögum sínum fram að áramótum. Sveitarstjórn hittist í framhaldinu annan hvorn mánudag kl. 15:00 í stað annars hvors þriðjudags klukkan 14:00. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn taki upp fyrri fundardaga eftir áramótin og hittist þá annan hvorn þriðjudag kl. 14:00. Sjá má breytingu á fundardögum í fundardagatali sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn mun að óbreyttu funda fram að áramótum á eftirtöldum tíma:

  • Laugardagur 31. október 2020 klukkan 09:00 (vinnufundur vegna fjárhagsáætlunar) í Ráðhúsi
  • Mánudagur 2. nóvember 2020 klukkan 15:00 í Ráðhúsi
  • Mánudagur 16. nóvember 2020 klukkan 15:00 í Ráðhúsi
  • Mánudagur 30. nóvember 2020 klukkan 15:00 í Ráðhúsi
  • Mánudagur 14. desember 2020 klukkan 15:00 í Ráðhúsi
  • Þriðjudagur 5. janúar 2021 klukkan 14:00 í Ráðhúsi

Fundadagatal sveitarstjórnar 2020-2021