Þitt atkvæði = þín rödd / Your vote = Your voice

Lived in Iceland for 3 years? You can vote in the municipal elections, short information meeting Saturday January 17th at 13:00 online or at Akureyri Municipal Library.

 Translations here 

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí 2026. Þau sem hafa verið búsett á Íslandi í þrjú ár samfleytt hafa rétt til að kjósa.

Þann 28. febrúar og 1. mars verða haldnar gjaldfrjálsar vinnustofur um kosningarétt og önnur skyld mál fyrir íbúa af erlendum uppruna sem eru búsettir á Akureyri, í Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppi og Hörgársveit.

Vinnustofurnar verða haldnar á Akureyri. Þar býðst tækifæri til að hitta og ræða við aðra íbúa og fræðast um lýðræðisleg réttindi, hlutverk sveitarstjórna, hvenær og hvernig kosningar fara fram og fleira.

Frekari upplýsingar fást á stuttum kynningafundi laugardaginn 17. janúar kl. 13.00. Fundurinn fer fram Amtsbókasafninu á Akureyri og í gegnum fjarfundarbúnað. Þau sem velja fjarfund fá hlekk við skráningu. Skráning hér. Þau sem mæta á bókasafnið þurfa ekki að ská sig.

Verkefnið er stutt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og innleitt í samstarfi við sveitarfélögin.