Laugardaginn 29. ágúst verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörstaður í Svalbarðsstrandarhreppi verður í Valsárskóla, gengið er inn að vestanverðu.
Kjörfundur hefst kl. 09:00 og lýkur kl. 17:00.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:
Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorgið á Akureyri) - Virka daga: kl. 10-15.
Kjörskrá
Kjörskrá Svalbarðsstrandarhrepps er aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins, einnig geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá inni á kosning.is
Upplýsingar um kosningarnar má nálgast hér
Kjörstjórn Svalbarðsstrandarhrepps
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801