Þrennir rafrænir kynningarfundir um Uppbyggingarsjóð

Haldnir verða tveir rafrænir kynningarfundir um Uppbyggingarsjóð, annar verður haldinn 18. september kl. 16:15 en hinn 20. september kl. 12:15.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundina þar sem þeir fara fram á Teams, skráning fer fram hér.
Jafnframt fer fram vinnustofa á ensku þann 21. september kl. 12:15.

Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra er 18. október kl. 12:00.

Veittir eru styrir í eftirfarandi þremur flokkum:
 
  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar