Þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði– kynning tillögu á vinnslustigi

Þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði – Rammahluti aðalskipulags, samstarfsverkefni Eyjafjarðarsveitar og Svalbarðsstrandarhrepps – kynning tillögu á vinnslustigi

Sveitarstjórnir Eyjafjarðarsveitar og Svalbarðsstrandarhrepps samþykktu á fundum sínum 7. og 12. desember 2023 að vísa skipulagstillögu fyrir rammahluta Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020, sem felur í sér breytingu á núgildandi aðalskipulögum, í kynningarferli samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tilgangur skipulagsverkefnisins er að móta heildstæða stefnu um þróun byggðar í Vaðlaheiði til framtíðar. Horft er á skipulagssvæðið sem eina heild þrátt fyrir að um tvö sveitarfélög sé að ræða. Markmið skipulagsins er að skipuleggja aðlaðandi og búsetuvæna byggð með dreifbýlisyfirbragði sem falli vel að náttúrulegu umhverfi svæðisins. Stefnt er að því að rammahluti aðalskipulags verði forskrift fyrir gerð deiliskipulagsáætlana og uppbyggingu á svæðinu til framtíðar.

Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi og á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu, á heimasíðum sveitarfélaganna, www.esveit.is og www.svalbardsstrond.is og á vef Skipulagsgáttar undir málsnúmerum 1066/2023 (Eyjafjarðarsveit) og 1082/2023 (Svalbarðsstrandarhreppur) milli 10. janúar og 14. febrúar 2024. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 14. febrúar 2024. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málunum á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Opinn kynningarfundur vegna verkefnisins fer fram í matsal Hrafnagilsskóla, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, kl. 20:00 fimmtudaginn 1. febrúar 2024. Þar munu fulltrúar beggja sveitarfélaga og aðstandenda verkefnisins kynna skipulagstillöguna og svara fyrirspurnum um málið frá fundargestum.

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Rammahluti aðalskipulags - Þróun byggðar í Vaðlaheiði