Þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði – auglýsing skipulagslýsingar

Rammahluti aðalskipulags, samstarfsverkefni Svalbarðsstrandarhrepps og Eyjafjarðarsveitar.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á 110. fundi sínum 21. mars 2023 að vísa skipulagslýsingu fyrir Rammahluti Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 og Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2018-2030, sem felur í sér breytingu á núgildandi aðalskipulögum, í kynningarferli samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Lýsingin er upphaf skipulagsvinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróun byggðar í Vaðlaheiði. Í lýsingunni koma fram upplýsingar um forsendur, viðfangsefni og fyrirhugað skipulagsferli og með kynningu á henni gefst íbúum og hagsmunaaðilum kostur á að leggja fram ábendingar og sjónarmið við upphaf skipulagsvinnu.

Skipulagslýsingin er aðgengileg á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu á Svalbarðseyri milli 4. apríl og 3. maí 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar til miðvikudagsins 3. maí 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulagsfulltrúi

 

Skipulagslýsing. Rammahluti aðalskipulags. Þróun íbúðarbyggðar í Vaðlaheiði.